Smá saga
Stelpan í rauðukápuni: Ég
Hr. Leiðinlegurr: Vinnan mín
Hr. Þröstur: ipodinn minn
Frú Skjalda: Heyrnatólin mín
4 athugasemdir

Ég var að hugsa.... hugtakið að leggja höfuð í bleyti, ég geri mér fullkomna grein fyrir því að í hvert skipti sem maður þarf að hugsa fer maður ekki að demba hausnum ofan í bala fullan að vatni, en einhverstaðar hlýtur þetta að hafa komið? Hugsar maður eitthvað betur ef að maður er að drukkna ofan í óvígðu vatni? Þetta hlýtur að koma úr gömlu dögunum, kannski var það þannig að fólk virkilega trúði því að geta kveikt á perunni ef maður fór á kaf, en svo fór þetta að vera mikið vesen fyrir fólk eins og rannóknarlögrelumenn í den að þurfa alltaf að bleyta axlirnar á búningum sínum, verða svo alltaf ískalt á öxlunum og fara kannski að fá kulbletti, þá hafi fólk bara tekið uppá því að segja þetta bara, fólk hélt kannski að ef maður nefndi það þá samansemaði það að gera það. Nei þetta er bara svoa pæling.
Einnig var ég að pæla, maður heyrir svo oft að hinir og þessir séu að selja djöflinum sál sína, eru þeir þá sálarlausir? hvernig virkar það að vera sálarlaus? Gæti maður þá sært viðkomandi andlega eins mikið og manni listir því jú það getur ekki haft áhrif á sálarlíf hans þar sem hann hefur enga til staðar. Og líka væri þá djöfullinn með margar sálir og hann gæti bara skipt eins og hann vill, en þá hljóta allar tilvistarkreppur um sálarlífs manns að færast með yfir til djöfullsins og hann sé þá í rauninni að díla við mörg alheims vandamál í sálarlífi hins og þessa. Og ef ég myndi særa mann sem er með sál sem er ekki til staðar, væri ég þá að demba því á djöfulinn og særa hann djúpt? Svo á endanum hlítur hann að fremja sjálfsmorð því engin guðleg né óguðleg vera getur dílt við svona mörg vandamál í einu. Þannig maður er þá frekar óvinur djöfulsins heldur en undirmaður hans ef maður vill selja honum sál sína. Hvað ætli maður fái fyrir hana?
Ár,mánuðir,dagar,klukkustundir,mínútur, ég get ekki talið hve löngum tíma ég hef eitt í Super Mario 3 í gömlu góðu Nitendo, þetta er einfaldlega bara besti leikur í heimi. Ég kíkti aðeins í hann áðan og komst uppí aðra veröld áður enn ég henti tölvunni gólfið óvart samt, var nett pirruð og slökkti á elsku Mario. Fór í dag og keyfti jólagjafir, er ekki búin samt að kláraði allavega helminginn.
Það eru tvær þáttaraðaseríur sem er er að spá í að ráðast í um jólin en það eru Ugly betty og The office, hef aldrei dottið í þær, langar að prófa:D.
Ókei ég hef ekkert að skirfa um svo ég skifa um líf mitt í hnotskurn.
ALMA: A fyrir alheimmsvisku
L fyrir lúðann
M fyrir máttin
Annað A fyrir A-hæfni
Alma er venjuleg manneskja en óvenjuleg persóna, hún hefur heitt blóð eins og aðrar manneskjur tíu putta og tær eins og aðrar manneskjur. Hún hefur hinsvegar enga sjálfsviðringu eins og venjulegar persónur hafa og hefur gaman að rakka sig niður og má dæmi nefna, ég er svo hvít, ég er orðin svo feit, ojj hárið mitt er orðið rautt. Alma er er ávallt ofarlega í huga mér og þessvegna skrifa ég um hana þegar ég seigist skrifa um lífið mitt. Alma gegir ýmsum nöfnum má til dæmis nefna Vélmundur björnsson, Björn bóndi, Natalía, Óberon og svo má ekki gleyma nafni sem Alma er best þekkt undir MC Almzz rapper!
MC Almzz rapper og kollegi hennar og besti vinur Philosopher Ænstæn eru vinsælasta rappdúóið í dag. Og án efa dáðir af táningspiltum og stúlkum um allan heim, en gaman má nú nefna að þessi skemmtilega hljómlistarstefna nær til allra aldurshópa. Má segja að þetta sé nýja bítlaæðið. En snúum okkur aftur að Ölmu... Alma er.... Alma kann....Alma getur....Alma....Alma....Alm... Al...A...A...A...
Alma er flókin persónuleiki aðeins eitt orð getur lýst Ölmu: Alma. Einn daginn vill hún vera röksýn og hinn daginn vill hún stofna rappdúó.
Við upphaf þessa bloggs spurði ég ölmu: "um hvað á ég að blogga?" O hún svarði einfaldlega mig, svo ég ákvað að verða að ósk hennar. En ég nefni þetta aðeins svo helga fari ekki í fýlu.
Ég hef áhyggjur af Andrési okkar önd, hann hagar sér ekki í samræmi við aðrar Amerískar Eldisendur sem hann telst vera. Þessi hegðun er ekki í neinu samræmi við hegðun þeirra anda sem ég hef rannsakað. Andrés sést til dæmis aldrei kafa eftir æti og yfirleitt mjög sjaldan á sundi. Trúlega hefur hann orðið fyrir ruglandi áhrifum frá umhverfi sínu. Vissulega eru endurnar á Reykjavíkurtjörn líka í borgarumhverfi en þetta tilfelli er miklu alvarlegra en nokkuð sem ég hef séð þar. Það er nánast eins og öndin haldi að hún sé maður.
Á föstudaginn síðasta hélt ég suður yfir landsteina okkar til okkar fyrverandi kóngsríkis Danmörk. Á föstudagsmorgun vaknaði ég eldhress um hálf fjögur um morguninn,kláraði að pakka og lagði af stað til keflavíks. Ein var ég á bát nokkrum á keflavíkurflugvelli í af minni klukku að dæma í 3 daga. Þegar ég var búin að skoða 3457sinnum í fríhöfnina 2876x í skífunna 6746x í 66° norður var mér farið að leiðast ég kíkti einusinni enn í fríhöfnina, helti þar niður nokkrum lítrum af kristal+ hjá ilmvatnsdeildinni þá dreif ég mig fram og ákvað að láta hvorki mann né.....................annann mann vita af þessu óhappi mínu. Í flugvélinni fattaði ég að ég hafi ekkert borðað þennann daginn, ég var frekar þreytt svo ég sofnaði og missti því þegar var keyrt framhjá mér matinn svo ég borðaði voða lítið fyrr en íste seinnipartinn og danskan lakkrís. Þegar komið var á kastrup byrjaði vesenið ég þurfti að taka lest til århus og samkvæmt minni heppni þá var auðvitað vesen með lestirnar svo ég þurfti fyrst að taka eina lest til kaupmannahafnar og hlaupa þaðan í einhverja aðra lest sem kom á sömu mínútinni og ég kom úr fyrri lest svo ég spurði einhvern gólátlegann gamlann mann á lestarstöðinni í kastrup sem var svo elskulegur að bjarga mér frá óvæntri svíðþjóðarferð og fylgdi mér alveg uppí rétta lest. Í dag vorum við að Versla að réttara sagt gerðum tilraun til að verlsa því við fórum í strætóinn sem fór vitlausa átt og rúntuðum um århus í einn og hálfan tíma. Þegar við komum loks á áfangastað var klukkutími í lokun. Af vanarlegri gleymsku gleymdi ég að borða þann daginn líka og upphvötaði að ég hafði ekkert borðað almennilega síðan á fimmtudaginn. Og þá hófst gamanið. Við ákváddum að versla fyrst og borða svo, inní bik bok byrjaði mig að svima, síðan svitnaði ég eins og ég væri í sturtu, ég byrjaði að sjá ekkert nema depla og af einskæri þrjósku náði ég að standa í lappirnar því það hefði verið ekkert mál að líða yfir mig og ég ætlaði sko ekki að gera mig að fíbli og líða útaf í bik bok. og aftur af minni einskæri heppni tók ég ekki tryggingarskirtenið með mér vegna feluleiks sem fór úr böndunum, tek það annars alltaf með mér út og hef aldrei þurft að nota það. Silja hljóp og keyfti eitthvað nammi fyrir mig til að hækka blóðsykurinn sem var að fara undir frostmark. Við keyftum okkur að borða en mér varð bara flökurt. Við drifum okkur út til að ná strætó heim. Þar ældi ég upp magasýrum jammý jammý jamm. Í strætó skílinu lagðist ég á bekkinn og leit út eins eins og versti róni. Í strætónum fann ég aftur til tilfinninar að þurfa að æla svo( á besta stað) hann var btw troðfullur. Ég reyndi að halda í mér og silja lét mig fá vera moda poka(Takk vera moda) og þar í fór munnfylli af magasýrum og tvö pasta. Sem betur fer er ég svo pro að það tók engin eftir þessu. Þegar heim var komið svaf ég í svona 3 tíma og vaknaði stálslegin og fékk mér að borða. Við ætluðum á Pétur Ben tónleika sem hann er að halda hér en þar sem við þurftum báðar mikið að læra þá ákváðum við að vera bara í símasambandi við pésa;D. Ótrúlegt en satt þá náði ég að þrauka út að kaupa eina peysu og einn klút í þessari mögnuðu ferð.Kveð ég nú mínir fögru íslendingar og haldið ykkur á mottunni og já veðrið hér er hið besta verður manni verður frekar heitt að vera í peysu. Silja Segir að þetta hafi ekki verið svona áður en ég kom svo ég tek því sem að þetta sé bara ég.
Der bor en bager på Norregade. Han bager kringler og julekage.
D Gm E
Han bager store, han bager små. Han bager nogle med sukker på.
A C#m
Og i hans vindu' er sukkersage og heste-, grise-, og peberkager.
D Gm E
Og har du penge so kan du få, men har du ingen så kan du gå.
